Kennsla og æfingar
Hakkaraskólinn
Gagnaglímufélag Íslands rekur Hakkaraskólann sem kennslu- og æfingavettvang fyrir þau sem vilja stíga sín fyrstu hakkaraskref eða læra meira. Æfingarvettvangurinn er opinn allt árið og öllum er frjálst að nota hann.
Þátttaka í landskeppninni
Gjaldgengir þátttakendur sem ná 1.000 stigum í Hakkaraskólanum fá boð í landskeppni Gagnaglímunnar, sem alla jafna er haldin í lok maí eða byrjun júní. Boðið gildir ekki aðeins það ár sem markmiðinu er náð heldur einnig næstu ár, svo lengi sem þátttakendur uppfylla aldursskilyrðin.