Netöryggiskeppni Íslands · 2027

Lærðu netöryggi
Kepptu fyrir Ísland

Gagnaglíman er árleg netöryggiskeppni fyrir forvitna, staðfasta og skapandi einstaklinga sem vilja byggja upp hagnýta tæknifærni.

10 í landsliði Íslands
25 ára eða yngri
ECSC Árósar, Danmörk
Byrjendavænt

Fyrir forvitið fólk

Þú þarft ekki fyrri reynslu. Forvitni, þolinmæði og áhugi duga til að byrja.

Hagnýt færni

Raunhæfar þrautir

Verkefnin byggja á CTF-formi og snerta vefi, dulkóðun, greiningu gagna og OSINT.

Tækifæri

Leið í landsliðið

Sterk frammistaða getur opnað leið inn í keppnishóp Íslands fyrir ECSC.

Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglíman, er árlegur viðburður á vegum Gagnaglímufélags Íslands. Markmið keppninnar er að efla áhuga íslenskra ungmenna á tölvuöryggi og auka þekkingu þeirra og færni. Keppnin er jafnframt undankeppni fyrir Netöryggiskeppni Evrópu, European Cybersecurity Challenge (ECSC), sem hefur það að markmiði að vekja áhuga ungs fólks á tölvuöryggi um alla Evrópu.

Það þarf ekki að fylgjast lengi með fréttum til að átta sig á mikilvægi tölvuöryggis í nútímasamfélagi. Reglulega birtast fréttir af fyrirtækjum og einstaklingum sem verða fyrir miklu fjárhagslegu tjóni vegna netárása. Einnig eru dæmi um að ríki standi að tölvuinnbrotum til að njósna um önnur ríki.

Þrátt fyrir mikilvægi tölvuöryggis skortir enn fólk með þekkingu og færni til að takast á við þær áskoranir sem því fylgja. Af þessum sökum setti Netöryggisstofnun Evrópu, ENISA, á laggirnar Netöryggiskeppni Evrópu. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til að kynna sér tölvuöryggi og íhuga að leggja það fyrir sig að atvinnu.

Um keppnina

Markmið keppninnar er að velja tíu manna lið til að taka þátt í ECSC 2027 fyrir Íslands hönd. Samkvæmt reglum ECSC verða keppendur að vera 25 ára eða yngri við lok keppnisársins, þ.e. fædd 2002 eða síðar. Netöryggiskeppnin fer fram í tveimur hlutum.

Hakkaraskólinn er opinn öllum allt árið. Tímabilið fyrir ECSC 2027 stendur frá 1. nóvember 2026 til 1. maí 2027. Þeir þátttakendur sem ná 1.000 stigum á æfingarvettvanginum fyrir 1. maí öðlast þátttökurétt í landskeppninni, sem haldin verður í maí.

Frammistaða keppenda í landskeppninni verður lögð til grundvallar við val á tíu manna liði til að taka þátt í ECSC 2027, sem haldin verður frá 27. september til 1. október í Árósum í Danmörku.

Bæði æfingarvettvangurinn og landskeppnin byggjast á hefðbundnum CTF-verkefnum (capture the flag), þar sem þátttakendur leysa sjálfstæð verkefni og safna stigum.

En ég hef enga reynslu af tölvuöryggi eða CTF. Er þessi keppni fyrir mig?

Já! Þú ert í sömu sporum og flestir aðrir þegar þeir byrja. Eins og með flest annað þarf áhuga og þolinmæði til að öðlast færni í tölvuöryggi. Ef þig langar að prófa er gott að byrja hér.

Framkvæmd keppninnar

Frá fyrstu þrautum í Hakkaraskólanum yfir í æfingar og loks Netöryggiskeppni Evrópu.

1. nóv 2026 – 1. maí 2027

Hakkaraskólinn

Framundan

Hakkaraskólinn er opinn öllum!

Þeim þátttakendum sem ná 1.000 stigum og eru 25 ára eða yngri verður boðið að taka þátt í landskeppninni.

maí

Landskeppni

Framundan

Í landskeppninni mæta keppendur á staðinn og leysa fjölbreyttar tölvuöryggisþrautir í gagnaglímuformi á afmörkuðum tíma og safna stigum fyrir leyst verkefni. Frammistaða í keppninni er lögð til grundvallar við val á keppnishópi Íslands fyrir ECSC.

Nánari dagsetning og staðsetning verða auglýstar síðar.

maí – 26. sep

Æfingar keppnishóps

Framundan

Reglulegar æfingar verða haldnar fyrir keppnishópinn.

27. sep – 1. okt

Netöryggiskeppni Evrópu (ECSC)

Framundan

Lið frá rúmlega 20 Evrópulöndum etja kappi í Netöryggiskeppni Evrópu.

Þjálfarar velja 10 einstaklinga úr keppnishópnum til að taka þátt fyrir Íslands hönd.