Er Gagnaglíman fyrir mig?

Hefurðu gaman af þrautum og að komast að því hvernig hlutir virka? Þá gæti gagnaglíma verið eitthvað fyrir þig. Þú þarft ekki fyrri reynslu til að byrja.

Hvað er gagnaglíma?

Gagnaglíma er íslensk þýðing á CTF, sem stendur fyrir Capture The Flag. Markmiðið er að nýta veikleika í sérútbúnum kerfum til að sækja falda fána.

Fáni er stuttur textabútur sem sannar að þú hafir leyst verkefnið. Þú skilar honum inn og færð stig fyrir lausnina.

Dæmi um hvernig fáni getur litið útfani{fundinn}
  1. Veldu þrautLestu verkefnið og skoðaðu vísbendingarnar
  2. Finndu fánannPrófaðu þig áfram og finndu leið að fánanum
  3. Skilaðu inn og fáðu stigRéttur fáni staðfestir að verkefnið sé leyst
Sýnidæmi

Fyrsti fáninn þinn

Leystu dæmið og skilaðu inn fyrsta fánanum þínum

Verkefni · falin skilaboð

Allt er á röngum enda

Einhver hefur reynt að fela fánann með því að skrifa hann afturábak. Geturðu lesið hann í rétta átt?

}treg_lev{inaf
Sjá vísbendingu

Byrjaðu á stafnum lengst til hægri og lestu til vinstri. Taktu slaufusvigana með í svarið.

Sjá lausnina

Fáninn er fani{vel_gert}. Prófaðu að skila honum inn í svarreitinn hér til hægri.

0 / 100 stig

Hvers konar verkefni?

Sum verkefni byrja á vef, önnur á leyniskilaboðum eða skrám fullum af vísbendingum. Hér eru nokkur dæmi.

Veföryggi

Vefur sýnir upplýsingar sem ættu að vera læstar. Geturðu fundið glufuna í því hvernig hann verndar þær?

Dulkóðun

Þú færð leyniskilaboð sem líta út eins og stafarugl. Finndu mynstrið og komdu að því hvað stendur í þeim.

Greining gagna

Vísbending leynist í mynd, skrá eða netumferð. Skoðaðu gögnin og tengdu saman brotin.

Bakhönnun

Þú færð forrit en ekki upprunalega kóðann. Geturðu komist að því hvernig það virkar og hvað það felur?

Veikleikar í forritum

Forrit hagar sér undarlega þegar það fær óvænt gögn. Finndu villuna og nýttu hana til að ná í fánann.

Hverjir mega taka þátt?

Það er gott að greina á milli þess að æfa sig í Hakkaraskólanum og þess að keppa í landskeppninni.

Opinn öllum

Hakkaraskólinn

Staðurinn til að læra, prófa og æfa sig á eigin hraða.

  • Öllum er frjálst að taka þátt, óháð aldri og þjóðerni
  • Þú þarft ekki fyrri reynslu af gagnaglímum
  • Æfingarvettvangurinn er opinn allt árið
Keppnisárið 2027

Landskeppnin

Áhugasamir keppendur mætast og leysa þrautir á staðnum.

  • Þátttakendur þurfa að vera íslenskir ríkisborgarar
  • Þeir þurfa að vera 25 ára eða yngri við lok ársins 2027, þ.e. fæddir 2002 eða síðar
  • Gjaldgengir þátttakendur sem ná 1.000 stigum í Hakkaraskólanum fá boð í landskeppnina

Boðið gildir líka næstu ár, svo lengi sem þátttakandi uppfyllir aldursskilyrðin.

Algengar spurningar

Þarf ég að kunna að forrita?

Þú þarft ekki að kunna að forrita til að byrja að kynna þér gagnaglímur. Verkefnin eru fjölbreytt og þú getur byggt upp þekkingu eftir því sem þú prófar fleiri þrautir. Forritun getur svo orðið eitt af verkfærunum sem þú lærir að nota.

Er þetta ekki bara fyrir gáfað fólk?

Alls ekki! Það fæðist enginn sérfræðingur á sínu sviði. Færni byggist upp með námi og þjálfun. Þótt eitthvað reynist erfitt í fyrstu þýðir það ekki að þú getir ekki lært það.

Þarf ég að geta leyst öll verkefnin?

Nei. Byrjaðu á einhverju sem vekur áhuga þinn og prófaðu þig áfram. Þú getur lært mikið af einni þraut og komið aftur að öðrum þegar þú hefur öðlast meiri reynslu.

Hvað geri ég ef ég festist?

Taktu skref til baka, lestu verkefnið aftur og prófaðu aðra nálgun. Þegar þú ert að æfa þig geturðu líka spurt okkur á Discord. Það er eðlilegur hluti af náminu að festast og leita nýrra leiða.

Spyrðu okkur á Discord

Af hverju að taka þátt?

Fyrst og fremst vegna þess að það er gaman að leysa þrautir! Um leið lærirðu að skoða vandamál frá fleiri hliðum og byggir upp hagnýta færni í netöryggi. Þekkingin getur nýst í námi, starfi og eigin verkefnum.

Næsta skref

Prófaðu eina þraut

Þú þarft ekki að kunna allt áður en þú byrjar. Veldu eitt verkefni og sjáðu hvert forvitnin leiðir þig.

  1. Opnaðu HakkaraskólannÞar finnurðu verkefni til að kynna þér og æfa þig á.
  2. Veldu eitthvað áhugavertLestu lýsinguna og byrjaðu á því sem vekur forvitni þína.
  3. Prófaðu þig áframFylgdu vísbendingunum og skilaðu fánanum þegar þú finnur hann.